Félag um foreldrajafnrétti (áður félag ábyrgra feðra) var stofnað árið 1997 til að vinna að bættum samskiptum feðra við börn sín, en stofnendum félagsins fannst mikið vanta upp á jafna stöðu mæðra og feðra við skilnað. Félagið skipti um nafn árið 2007 og hefur breytt áherslum sínum. Foreldrahlutverkið er ekki kyngert lengur og foreldrahlutverkið skilgreint út frá hagsmunum barnanna fremur en hagsmunum foreldranna. Félagið telur að verulega sé brotið á réttindum barna á Íslandi til að umgangast báða foreldra sína ríkulega eftir skilnað. Ljóst er að lagaumhverfið er úrellt á mörgum sviðum í þessum málaflokki og stuðlar enn að því að mæður beri meiri ábyrgð og skyldur við umönnun barna eftir skilnað. Mikilvægt er breyta lögum á þann hátt að:
Félagið hefur stóra 13 manna stjórn sem hittist á 1-2 vikna fresti ásamt félagsfundum einu sinni í mánuði. Félagið tekur ekki afstöðu í ágreiningsmálum einstaklinga en veitir ráðgjöf í síma félagsins 419-6000 á kvöldin. Félagið einbeitir sér að breyttu lagaumhverfi og breytingum í stjórnsýslu. Félagið á nú fulltrúa í nefndum og ráðum um þessi málefni og lögskipaða setu í jafnréttisráði.
Framfærsluskyldur og opinber stuðningur við foreldra verði samræmdur án tillits til lögheimilisskráningar barns.
Mál sem tengjast baráttu fyrir samræmdri framfærsluskyldu foreldra:
Jöfn búseta barns á tveimur heimilum meginregla þegar foreldrar búa ekki saman.
Sameiginleg forsjá verði meginregla óháð sambúðarstöðu foreldra frá fæðingu barns.
Stjórnvöld komi í veg fyrir tilhæfulausar umgengnistálmanir án tafar.
Mál sem tengjast baráttu gegn tilefnislausum umgengnistálmunum:
Að flýtimeðferð eigi við í umgengnis-, lögheimilis-, og forsjármálum þegar barn er lítið sem ekkert í samvistum við annað foreldrið vegna ágreinings foreldra.
Að samþykki beggja forsjárforeldra þurfi fyrir flutningi á lögheimili barns úr einu skólahverfi í annað.
Að borin verði kennsl á foreldraútilokun sem ofbeldi á barni og ofbeldi í nánum samböndum sem beinist gegn foreldri og bitni á barni.
Að tekið verði mið foreldraútilokun við meðferð dóms- og úrskurðarmála og viðurkennt að sú hegðun stríði gegn hagsmunum barns.
Að foreldrar njóti jafnræðis í hvívetna við meðferð ágreiningsmála hvað varðar börn þeirra.
Að úrræðum og fjármagni verði veitt í eftirfylgni með erfiðum forsjár- og umgengnismálum og leyfi inngrip séu samningar eða úrskurðir ekki virtir.
Foreldrum verði heimilt að semja um að barn hafi lögheimili á báðum heimilum.
Jöfn búseta barns á tveimur heimilum meginregla þegar foreldrar búa ekki saman.
Mál sem tengjast baráttu fyrir jafnri búsetu sem meginreglu:
Framfærsluskyldur og opinber stuðningur við foreldra verði samræmdur án tillits til lögheimilisskráningar barns.
Sameiginleg forsjá verði meginregla óháð sambúðarstöðu foreldra frá fæðingu barns.
Stjórn félagsins er skipuð 10 aðilum og trúnaðarráð 10 til viðbótar. Stjórn fundar aðra hverja viku og trúnaðarráð mánaðarlega alla jafna.
Netfang stjórnar er stjorn@foreldrajafnretti.is
1. gr. Nafn
2. gr. Tilgangur
3. gr. Félagsaðild
4. gr. Aðalfundur
5. gr. Stjórn
6. gr. Aukaaðalfundur
7. gr. Rekstrarafgangur
8. gr. Félagsslit
9. gr. Lagabreytingar
Lög þessi voru síðast samþykkt á aðalfundi félagsins.
Dagsetning: 18. febrúar 2023
Lög félagsins voru fyrst samþykkt á stofnfundi félagsins þann 10. september 1997. Þá hafa lögin tekið breytingum á aðalfundum 30. september 1998, 27. september 2000, 4. október 2003, 25.september 2004, 28. september 2006, 4. október 2007, 8. október 2009, 27. október 2011, 16. nóvember 2016, 26. september 2017, 22. september 2020, 1. október 2021 og 18. febrúar 2023.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat.
Félagið veitir foreldrum og börnum í vandræðum símaráðgjöf í málum sem snerta sameiginlegt uppeldishlutverk foreldra.
Foreldrajafnrétti
www.foreldrajafnrétti.is
Hafðu samband:
foreldrajafnretti@foreldrajafnretti.is
Sími:
419 6000
© Foreldrajafnrétti, allur réttur áskilinn