logo

Foreldrajafnrétti

Stefna og starfsemi

Félag um foreldrajafnrétti (áður félag ábyrgra feðra) var stofnað árið 1997 til að vinna að bættum samskiptum feðra við börn sín, en stofnendum félagsins fannst mikið vanta upp á jafna stöðu mæðra og feðra við skilnað. Félagið skipti um nafn árið 2007 og hefur breytt áherslum sínum. Foreldrahlutverkið er ekki kyngert lengur og foreldrahlutverkið skilgreint út frá hagsmunum barnanna fremur en hagsmunum foreldranna. Félagið telur að verulega sé brotið á réttindum barna á Íslandi til að umgangast báða foreldra sína ríkulega eftir skilnað. Ljóst er að lagaumhverfið er úrellt á mörgum sviðum í þessum málaflokki og stuðlar enn að því að mæður beri meiri ábyrgð og skyldur við umönnun barna eftir skilnað. Mikilvægt er breyta lögum á þann hátt að:

  • Dómarar fái heimild til að dæma sameiginlega forsjá
  • Stuðla að mest mestri umgengni við báða foreldra
  • Börn geti átt tvö lögheimili og dvalið á þeim báðum
  • Meðlagsgreiðslukerfið verði endurskoðað frá grunni
  • Kostnaður við umgengni verði sameiginlegur
  • Kostnaður við umgengni verði sameiginlegur
  • Sjálfvirk forsjárskylda sambúðaraðila lögheimilisforeldris verði felld niður
  • Hert viðlög í refsilöggjöf við tálmunum á umgengi

Félagið hefur stóra 13 manna stjórn sem hittist á 1-2 vikna fresti ásamt félagsfundum einu sinni í mánuði. Félagið tekur ekki afstöðu í ágreiningsmálum einstaklinga en veitir ráðgjöf í síma félagsins 419-6000 á kvöldin. Félagið einbeitir sér að breyttu lagaumhverfi og breytingum í stjórnsýslu. Félagið á nú fulltrúa í nefndum og ráðum um þessi málefni og lögskipaða setu í jafnréttisráði.

Þrjú forgangsmál félagsins

Jafnar framfærsluskyldur foreldra

Framfærsluskyldur og opinber stuðningur við foreldra verði samræmdur án tillits til lögheimilisskráningar barns.

Mál sem tengjast baráttu fyrir samræmdri framfærsluskyldu foreldra:

  • Jöfn búseta barns á tveimur heimilum meginregla þegar foreldrar búa ekki saman.

  • Sameiginleg forsjá verði meginregla óháð sambúðarstöðu foreldra frá fæðingu barns.

Umgengnistálmanir

Stjórnvöld komi í veg fyrir tilhæfulausar umgengnistálmanir án tafar.

Mál sem tengjast baráttu gegn tilefnislausum umgengnistálmunum:

  • Að flýtimeðferð eigi við í umgengnis-, lögheimilis-, og forsjármálum þegar barn er lítið sem ekkert í samvistum við annað foreldrið vegna ágreinings foreldra.

  • Að samþykki beggja forsjárforeldra þurfi fyrir flutningi á lögheimili barns úr einu skólahverfi í annað.

  • Að borin verði kennsl á foreldraútilokun sem ofbeldi á barni og ofbeldi í nánum samböndum sem beinist gegn foreldri og bitni á barni.

  • Að tekið verði mið foreldraútilokun við meðferð dóms- og úrskurðarmála og viðurkennt að sú hegðun stríði gegn hagsmunum barns.

  • Að foreldrar njóti jafnræðis í hvívetna við meðferð ágreiningsmála hvað varðar börn þeirra.

  • Að úrræðum og fjármagni verði veitt í eftirfylgni með erfiðum forsjár- og umgengnismálum og leyfi inngrip séu samningar eða úrskurðir ekki virtir.

Jöfn búseta

Foreldrum verði heimilt að semja um að barn hafi lögheimili á báðum heimilum.

Jöfn búseta barns á tveimur heimilum meginregla þegar foreldrar búa ekki saman.

Mál sem tengjast baráttu fyrir jafnri búsetu sem meginreglu:

  • Framfærsluskyldur og opinber stuðningur við foreldra verði samræmdur án tillits til lögheimilisskráningar barns.

  • Sameiginleg forsjá verði meginregla óháð sambúðarstöðu foreldra frá fæðingu barns.

Stjórn félagsins

Stjórn félagsins er skipuð 10 aðilum og trúnaðarráð 10 til viðbótar. Stjórn fundar aðra hverja viku og trúnaðarráð mánaðarlega alla jafna.

Netfang stjórnar er stjorn@foreldrajafnretti.is

Lög félagsins

1. gr. Nafn

  • Félagið heitir „Foreldrajafnrétti“. Áherslur félagsins lúta að réttindum barna til að þekkja og umgangast báða foreldra sína í samræmi barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Enskt heiti félagsins er: „Equal Parenting Iceland“.

2. gr. Tilgangur

  • Félagið er mannréttindafélag sem stendur fyrir rétti barna til beggja foreldra sinna og jöfnum rétti foreldra til að sinna foreldrahlutverki sínu óháð fjölskyldugerð. Félagið vill stuðla að málefnalegri og upplýstri umræðu um stöðu barna og foreldra, á þann hátt að löggjafinn, framkvæmda- og dómsvaldið tryggi börnum að sú meginregla Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barns sé virt að foreldrar beri sameiginlega ábyrgð á að ala upp barn og koma því til þroska.

3. gr. Félagsaðild

  • Félagsaðild er opin öllum einstaklingum. Til þess að gerast félagi þarf að skrá sig á heimasíðu félagsins og greiða uppsett félagsgjald. Félagsaðild er virk út starfsár félagsins sbr. 4. gr.

4. gr. Aðalfundur

  • Aðalfundur fer með æðsta vald félagsins. Aðalfundur skal að jafnaði haldinn í febrúar ár hvert og boðað skal til hans með sannanlegum hætti með auglýsingu á heimasíðu félagsins og tengdum samfélagsmiðlum að minnsta kosti tveimur vikum fyrir fund.
  • Aðalfundur er lögmætur ef hann er löglega boðaður. Á aðalfundi ræður meirihluti atkvæða og fylgir eitt atkvæði hverjum félagsaðila sem greitt hefur félagsgjöld fyrir liðið starfsár.
  • Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
    1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
    2. Skýrsla stjórnar lögð fram
    3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
    4. Lagabreytingar
    5. Ákvörðun félagsgjalds
    6. Kosning stjórnar
    7. Kosning endurskoðanda eða skoðunarmanns
    8. Skipun fulltrúaráðs
    9. Önnur mál
  • Starfsár félagsins miðast við almanaksár.
  • Aðalfundur velur stjórn félagsins með leynilegri kosningu.
  • Kjörgengir til stjórnar eru félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald og verið hafa félagsmenn í a.m.k. tvö ár og starfað í fulltrúaráði í eitt ár er boðað er til aðalfundar.
  • Fráfarandi stjórn skipar kjörnefnd.
  • Þeir sem vilja gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna það kjörnefnd með skriflegum hætti að minnsta kosti 10 dögum fyrir aðalfund. Hlutverk kjörnefndar er að athuga kjörgengi frambjóðenda og að stilla upp lista stjórnarmanna til samþykktar á aðalfundi.

5. gr. Stjórn

  • Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda.
  • Stjórn félagsins hefur heimild til að skuldbinda félagið.
  • Stjórnarformaður og gjaldkeri rita firma.
  • Stjórn félagsins skal skipuð fimm til sjö fulltrúum og einum til fimm til vara.
  • Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Formaður boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist stjórnarfundar. Sama rétt á framkvæmdastjóri ef ráðinn verður.
  • Boða skal aðal- og varamenn stjórnar til stjórnarfunda með tryggilegum hætti. Í fundarboði skal fylgja dagskrá fundar. Formaður stýrir stjórnarfundum. Gerðir stjórnarinnar skulu bókfærðar.
  • Stjórnarfundur er ályktunarfær ef fjórir stjórnarmenn hið fæsta, sækja fundinn. Sjö fundarmenn í það mesta hafa atkvæðisrétt á stjórnarfundi. Séu fundarmenn fleiri er valið af handahófi úr varamönnum sem munu hafa atkvæðisrétt. Meirihluti fundarmanna hefur úrskurðarvald á stjórnarfundi.
  • Reikningar félagsins skulu samþykktir af stjórn félagsins og félagslegum skoðunarmanni.
  • Fulltrúaráð mun taka virkan þátt í starfi félagsins og vera stjórn félagsins til aðstoðar.
  • Stjórn getur skipað viðbótar fulltrúum í eða vísað fulltrúum úr fulltrúaráði á stjórnarfundi.

6. gr. Aukaaðalfundur

  • Heimilt er að boða til aukaaðalfundar ef sérstakar aðstæður koma upp. Til að boða til aukaaðalfundar verða a.m.k. fimm stjórnarmenn að samþykkja tillögu þess efnis. Um boðun slíks fundar gilda sömu reglur og við boðun aðalfundar. Í fundarboðinu skal koma fram hvað gera skuli á aukaaðalfundi og takmarkast valdsvið fundarins við auglýsta dagskrá.

7. gr. Rekstrarafgangur

  • Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til þess að stuðla að málefnalegri og upplýstri umræðu í samræmi við tilgang félagsins.

8. gr. Félagsslit

  • Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með samþykki 9/10 hluta atkvæða og renna eignir þess til Barnaheilla, félags, kt. 521089-1059 eða sambærilegs félags sem berst fyrir réttindum barna. Verði félaginu hins vegar breytt í sjálfseignarstofnun skulu allar eignir félagsins renna til hennar. Tillaga um félagsslit verður að koma fram í fundarboði.

9. gr. Lagabreytingar

  • Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi enda skal lagabreytinga getið í fundarboði. Tillögum til lagabreytinga skal skilað til stjórnarinnar eigi síðar en 20 dögum fyrir aðalfund. Til breytinga á félagslögum þarf samþykki 3/4 hluta fundarmanna.

Lög þessi voru síðast samþykkt á aðalfundi félagsins.

Dagsetning: 18. febrúar 2023

Lög félagsins voru fyrst samþykkt á stofnfundi félagsins þann 10. september 1997. Þá hafa lögin tekið breytingum á aðalfundum 30. september 1998, 27. september 2000, 4. október 2003, 25.september 2004, 28. september 2006, 4. október 2007, 8. október 2009, 27. október 2011, 16. nóvember 2016, 26. september 2017, 22. september 2020, 1. október 2021 og 18. febrúar 2023.

Gerast meðlimur

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat. 

Styrkja félagið

Félagið veitir foreldrum og börnum í vandræðum símaráðgjöf í málum sem snerta sameiginlegt uppeldishlutverk foreldra.