A qualitative exploration of reunification post alienation from the perspective of adult alienated children and targeted parents Jacinta Hickey, Jessica Bowring, Leesa Van Niekerk, Mandy L. Matthewson, Peta Diercke, Sophie Ward Úrræði Ritrýnd vísindarannsókn Áfallamiðuð nálgun, Foreldraútilokun, Foreldraútilokunarhegðun, Útilokað barn, Útsett foreldri Þessi rannsókn kannar flókna ferlið við endursameiningu eftir foreldraútilokun frá sjónarhóli uppkominna barna og foreldra sem hafa verið útilokaðir. Með því að nota hálfopin viðtöl og þemagreiningu leiðir rannsóknin í ljós að endurfundir eru brothætt, langvarandi ferli sem einkennast af tímabilum tengsla og höfnunar. Lykilþættir sem hafa áhrif á árangursríka endurfundi eru skilvirk samskipti, stuðningskerfi og djúpur skilningur á gangverki foreldraútilokunar. Niðurstöðurnar varpa ljósi á seiglu tengsla milli foreldra og barna og undirstrika mikilvægi samvinnu til að auðvelda lækningu og enduruppbyggingu sambanda. Þessi rannsókn veitir verðmætar upplýsingar fyrir þróun betri úrræða og stuðningskerfa fyrir fjölskyldur sem verða fyrir áhrifum af foreldraútilokun.
2023-06-09 | Findings of Abuse in Families Affected by Parental Alienation Amanda E. Sharples, Demonsthenes Lorandos, Jennifer J. Harman Skilgreining Ritrýnd vísindarannsókn Child abuse, Child custody, Domestic voilence, Family violence, Parental alienation Í þessari ritrýndu vísindarannsókn kemur fram að foreldrar sem útiloka börn sín frá hinu foreldrinu eru líklegri til að hafa verið fundnir sekir um ofbeldi. Þeir sem eru útilokaðir eru aftur á móti líklegri til að vera ranglega ásakaðir um ofbeldi. Kyn foreldris hafði ekki áhrif á niðurstöður. Rannsóknin bendir til að falskar ásakanir gætu verið taktík útilokandi foreldra.
Foreldraútilokun, reynsla útsettra foreldra í Tyrklandi Fuat Torun, Mandy L. Matthewson, Sebahat Dilek Torun Áhrif á foreldra Ritrýnd vísindarannsókn Foreldraútilokun, Skilnaður, Útilokandi aðferðir, Útsett foreldri Í þessari ritrýndu vísindarannsókn var kannað hvernig útsettir foreldrar í Tyrklandi upplifa útilokun frá börnum sínum. Helmingur þátttakenda leitaði til geðheilbrigðisþjónustu, en fannst skorta stuðningsúrræði og þekkingu á foreldraútilokun. Tæplega 70% trúðu á að sambandið við börnin myndi batna í framtíðinni. Rannsóknin bendir til þess að þörf sé á betri þjálfun fyrir fagaðila til að takast á við foreldraútilokun.
Gleymda foreldrið: Foreldraútilokun frá sjónarhóli útsetta foreldrisins Clare Poustie, Mandy L. Matthewson, Sian Balmer Áhrif á foreldra Ritrýnd vísindarannsókn Foreldraútilokun, Heimilisofbeldi, Útilokað foreldri, útilokuð fjölskylda, Útsett foreldri Í þessari ritrýndu vísindarannsókn eru dregnar fram þær sálfélagslegu afleiðingar sem foreldraútilokun hefur fyrir útsetta foreldra og börn þeirra. Rannsóknin sýnir fram á að útsettir foreldrar upplifa foreldraútilokun sem andlegt ofbeldi og kerfisbundna mismunun. Niðurstöðurnar benda til þess að seigla foreldra geti verið mikilvæg í baráttunni gegn útilokun og að aukinn skilningur og samvinna kerfisins sé lykilatriði í að koma í veg fyrir slíkt ofbeldi.
2023-01-01 | Abused and Rejected: The Link Between Intimate Partner Violence and Parental Alienation Gena A. Rowlands, Jennifer J. Harman, Richard A. Warshak Skilgreining Ritrýnd vísindarannsókn Child abuse, Divorce, Domestic violence, Family violence, Parental alienation Í þessari ritrýndu vísindarannsókn kom í ljós að foreldrar sem urðu fyrir ofbeldi í nánum samböndum litu það alvarlegri augum að vera útilokuð frá börnum sínum en foreldrar án reynslu af slíku ofbeldi. Konur voru oftar þolendur ofbeldis í nánum samböndum en karlar og þær greindu einnig frekar frá líkamlegu ofbeldi og töldu útilokandi hegðun barna sinna vera alvarlegri. Þessar niðurstöður gætu hjálpað til við að greina útilokunarmynstur snemma og stuðlað að bættum forvörnum og meðferð.
2022-05-01 | Evaluation of the Turning Points for Families (TPFF) program for severely alienated children Jennifer J. Harman, Luke Sanders, Tamara Afifi Úrræði Ritrýnd vísindarannsókn Family therapy, Parental alienation, Reunification therapy Í þessari ritrýndu vísindarannsókn var skoðað meðferðarúrræðið Þáttaskil fyrir fjölskyldur (e. Turning Points for Families), ætlað alvarlega útilokuðum börnum. Niðurstöður sýndu að meðferðin var örugg, skaðaði ekki börnin og studdi við jákvæðar breytingar í sambandi barna við útilokaða foreldrið. Börnin tengdust aftur útilokaða foreldrinu án neikvæðra afleiðinga, og sýndu framfarir í sameiginlegum viðbrögðum og stöðugleika í félagslegum stuðningi og samskiptamynstri.
2021-12-01 | Power dynamics in families affected by parental alienation Caitlyn Grubb, hrisChristopher R. Maniotes, Jennifer J. Harman Skilgreining Ritrýnd vísindarannsókn Abuse/aggression, Divorce, Families, Other Í þessari ritrýndu vísindarannsókn kom í ljós að foreldrar sem töldu sig vera fórnarlömb foreldraútilokunar greindu frá auknum tilvikum af ójafnvægi í valdahlutföllum og yfirráðum annars foreldrisins. Þetta var sérstaklega áberandi þegar útilokandi foreldrið hafði meiri umgengni eða fór eit með forsjá yfir barninu. Rannsóknin sýndi marktækan mun á lýsingum foreldranna á þessum aðstæðum eftir umgengni, sem bendir til að foreldrar með jafna umgengni eða sameiginlega forsjá voru síður líklegir til að upplifa slíkt valdaójafnvægi.
Reclaiming Parent–Child Relationships: Outcomes of Family Bridges with Alienated Children Richard A. Warshak Úrræði Ritrýnd vísindarannsókn Alienation, Custody reversal, High-conflict divorce, Parental alienation, Reunification Í þessari ritrýndu vísindarannsókn var metinn árangur Family Bridges námskeiðsins á börn sem höfðu hafnað foreldri sínu. Niðurstöður sýna að eftir námskeiðið féll hlutfall barna sem voru mótfallin umgengni við útilokað foreldri úr 85% í 6% samkvæmt foreldrum en 4% samkvæmt leiðbeinendum. Tæplega 90% barnanna fannst líðan sín betri eftir námskeiðið og meirihluti foreldra og fagfólks mátu bætt samskipti. Rannsóknin bendir hún til þess að Family Bridges geti verið árangursrík leið til að bæta samband barna við útilokuð foreldri.