2021-09-09 | PASG Brussels | Simona Maria Vlădica
Dr. Simona Maria Vlădica er sálfræðingur, sáttamiðlari og lektor við sálfræðideild Háskólans í Búkarest í Rúmeníu. Hún telur mikilvægt að dómarar, saksóknarar og aðrir fagaðilar skilji hvað foreldraútilokun er og hverjar afleiðingar hennar eru, til lengri og skemmri tíma. Hún ákvað því að kenna saksóknurum og dómurum hvernig ætti að takast á við þetta fyrirbæri. Hún byrjaði að skipuleggja ráðstefnur í ólíkum félögum og koma á samstarfi við sérfræðinga. Hún hélt síðan vinnustofu með sérfræðingum þar sem þetta fyrirbæri var rætt út frá sálfræðinni og réttarkerfinu. Fyrirbærið var greint út frá sjónvarhorni þeirra og út frá sjónarhorni hennar sem sálfræðingur.
Dr. Vlădica telur að það ómögulegt að stöðva foreldraútilokun alveg. Hins vegar þurfi að einblína á að stöðva útbreiðslu þessa fyrirbæris. Hún bendir á að lögin eru ekki endilega vandamálið: vandamálið er að skilning skortir á því hversu alvarlegt fyrirbærið er. Dómari sem skilur fyrirbærið er vísari til að finna nógu mörg ákvæði í lögunum til að réttlæta ákvörðun sína. Dr. Vlădica bendir jafnframt á að útilokunarforeldrar geri margt til að virða ekki rétt barnannatil að umgangast hitt foreldrið. Engin skýr útskýring á þessu. Foreldrarnir eru að upplifa þrautir og þjáningu, en barnið þjáist þó mest vegna þess að það hefur ekkert vald og getur ekkert gert.
Hún telur eðlilegt að börn hafi frelsi til að uppgötva og reyna að gera hlutina sjálf. Þegar foreldraútilokun á sér stað missa börnin sjálfstæði sitt og verða háð útilokunarforeldri sínu. Barni sem er kennt að hata mun ekki farnast vel sem fullorðinn einstaklingur, vegna þess að við sem fullorðið fólk þurfum að sýna öðrum samkennd. Dr. Vlădica segir að þess vegna sé mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir afleiðingunum. Við erum að gera margt rétt en verkinu er ekki lokið og enn eru margir dómarar sem skilja ekki fyrirbærið foreldraútilokun.
Foreldrajafnrétti
www.foreldrajafnrétti.is
Hafðu samband:
foreldrajafnretti@foreldrajafnretti.is
Sími:
419 6000
© Foreldrajafnrétti, allur réttur áskilinn