2021-09-09 | PASG Brussels | Ursula Kodjoe | Parenting Commitment Ursula Kodjoe sálfræðingur hefur unnið mikið með fjölskyldum sem eiga í vanda vegna skilnaðardeilna. Hún segir marga foreldra aldrei tala um það sem þeir óska börnum sínum og bendir á að það eru ekki bara börnin sem þurfa að þroskast, heldur foreldrarnir líka. Mikilvægt er að foreldrarnir fái nauðsynlegar upplýsingar um foreldrahlutverkið og séu frædd um þarfir nýfædda barnsins, með áherslu á tengslamyndun og tilfinningalegar þarfir.
2021-09-09 | PASG Brussels | Simona Maria Vlădica Dr. Simona Maria Vlădica er sálfræðingur, sáttamiðlari og lektor við sálfræðideild Háskólans í Búkarest í Rúmeníu. Hún telur mikilvægt að dómarar, saksóknarar og aðrir fagaðilar skilji hvað foreldraútilokun er og hverjar afleiðingar hennar eru, til lengri og skemmri tíma. Hún bendir á að lögin eru ekki endilega vandamálið: vandamálið er að skilning skortir á því hversu alvarlegt fyrirbærið er.
2021-09-09 | PASG Brussels | Silvia Danowski-Reetz Í þessu viðtali ræðir Silvia Danowski-Reetz sálfræðingur um mikilvægi þess að foreldrar í forsjárdeilum vinna saman að lausnum í þágu barna sinna. Hún útskýrir hvernig dómstólar geta beitt þvingunum til að stuðla að samvinnu og fræðir foreldra um alvarlegar afleiðingar átaka á börn. Danowski-Reetz lýsir einnig vinnu sinni með börnum og foreldrum til að endurvekja umgengni og tryggja velferð barna.
2021-09-09 | PASG Brussels | Marie-France Carlier Marie-France Carlier er dómari við fjölskyldu- og ungmennadómstól í Namur í Belgíu. Hún bjó til Samkomulagslíkanið (Parental Consensus Model) sem miðar að því að koma í veg fyrir að tengslin á milli barna og foreldra þeirra rofni í kjölfar aðskilnaðar. Með Samkomulagslíkaninu veitir Carlier einungis sérfræðilega ráðgjöf, þar sem unnið er með erfiðleikana sem eru til staðar.
2021-09-09 | PASG Brussels | Jorge Guerra González Í þessu viðtali ræðir Dr. Jorge Guerra González, lögfræðingur og sáttamiðlari, um hvernig foreldraútilokun þróast og hvernig hægt sé að brjóta vítahringinn með því að auka jafnræði foreldra og skýra muninn á orðum, vilja og velferð barnsins. Hann talar um að fjölskyldudómstólar séu ekki alltaf best til þess fallnir að takast á við fjölskylduvandamál og leggur til sáttamiðlun sem lausn.
2021-09-09 | PASG Brussels | Hans-Christian Prestien Hans-Christian Prestien var dómari við fjölskylduréttinn í Bielefeld í Þýskalandi frá árinu 1977 til 1981. Hann vann með tveimur háskólaprófessorum í sálfræði að því að að þróa hugmyndafærði til að takast á við erfiðar fjölskyldudeilur fyrir dómstólum. Hans-Christian kallar eftir lagalegum breytingum í forsjármálum og telur heillavænlegast að skipa þverfaglega fulltrúa til að gæta hagsmuna barna í slíkum málum.
2021-09-09 | PASG Brussels | Bruno Humbeeck Í erfiðum skilnaði geta börn orðið óviljandi vitni, sem getur valdið þeim skaða. Núna er æ meira krafa á foreldra um að skipuleggja umgengni eftir skilnað út frá hagsmunum barnsins. Bruno Humbeeck, prófessor í skólasálfræði og rannsóknastjóri við Háskólann í Mons, er sérfræðingur í seiglu og býður ráðgjöf í fjölskyldufræðslu, tengslum milli heimilis og skóla, neyslu, fíkn og aðstoð við félagsleg vandamál.
2021-09-09 | PASG Brussels | Brian O’Sullivan Brian O’Sullivan, viðurkenndur fjölskyldusálmeðferðarfræðingur stýrði einu rannsókninni sem gerð hefur verið á foreldraútilokun á Írlandi og hefur búið til líkan sem miðar að því að leiða útilokuð börn og foreldra saman á ný. Hann telur að þjálfun og menntun fagfólks á sviði félags-, dóms- og geðheilbrigðismála skipti höfuðmáli í útilokunarmálum.